Ađalvalmynd

Draumar...

07. september 2007 klukkan 22:36
Oft vakna ég og man óljóst einhverja algjöra steypu sem mig dreymdi um nóttina!
En nokkrum sinnum undanfarna mánuði hefur mig dreymt alveg ótrúlega raunverulega drauma, þegar mig dreymir svona raunverulega og eftirminnilega drauma langar mig oft að kíkja í draumráðningabók til að tékka á merkingunni.

Í gærnótt dreymdi mig einmitt svona voðalega raunverulegan draum sem ég mundi hvert einasta smáatriði úr. Ég ætla að segja frá honum, en svona stikla á stóru ;)

Draumurinn byrjaði á því að ég var að missa vatnið, já semsagt að fara að eignast barn, ég var á sjúkrahúsi (sem ég man samt ekki eftir að hafa komið á áður :) )  og já og svo eignast ég barnið. Hef greinilega ákveðið að útiloka smáatriðin þar, en man svona óljóst eftir að hafa fætt þennan yndislega, pínulitla dreng :)  Hann var semsagt mjög lítill, en samt ekkert óeðlilega lítill :)
Svo er ég á svona hvíldarstofu með litla strákinn minn og er að gefa honum brjóst, þá koma svona nánustu vinir og vandamenn í heimsókn. Ekkert merkilegt við það svosem.
Svo liggur hann í fanginu á mér, og þá bara lekur mjólk og eitthvað er ég að vesenast með það og svona.
En svo er eitthvað fólk þarna hjá mér og ég og allir aðrir erum að dást að þessum litla snáða, og þá ákveð ég að hann eigi að heita Sigurður og tilkynni öllum það!
Svo er bara eitthvað svona óljóst spjall um nafnið og dáðst meira af þessum litla
sæta dreng :)

Ég fór í dag inn á www.draumur.is sem er svona draumráðningabók á netinu og fletti upp svona því helsta:

Ungbarn

Dreymi þig að þú hafir eignast dreng er það mikið gæfumerki. Enn betra er að sjá barnið á brjósti.

Sigurður

Boðar sigur, málefni þín fá góð úrslit.


 

Þannig að ég býst við því að eiga mjög góða nánustu framtíð :)

Hefði ég hinsvegar fengið neikvæða ráðningu á þessu hefði ég örugglega ekkert verið að taka mark á henni hehehe :)


En já, ákvað að deila þessu þar sem að allavega mér finnst stundum rosa gaman að pæla í draumum =)

 
Katrín
mér finnst líka heví gaman að pæla í draumum.. en ég verð bara heví hrædd ef þeir hafa slæma merkingnu þaning að ég þori ekkert allataf að tékka á því :/

það kemur nefla mjjjjjjjjög sjaldan fyrir að ég man drauma vel.. stundum ef ég hitti bara þúst einhvern þá svona heyyy mig dreymdi þig í nótt.. en man ekkert meira

þannig að í þessu fáu skipti sem ég man allt, finnst mér að draumurinn hljóti að eiga að merkja eitthvað fyrst að ég man hann.. þori ekki að tékka, vil ekki fá neitt vont út úr þeim
#1
14. september 2007 klukkan 03:13
 
Linda
Eimmitt! mér finnst líka að þegar að ég man svona rosa vel eftir öllu þá hljóti það að þýða eitthvað! því það er ekkert svo oft sem það gerist :D
en ég tékka samt yfirleitt á því ef að ég get það... er oft svo forvitin ;)
#2
15. september 2007 klukkan 23:30
þú ert æði :)
#3
17. september 2007 klukkan 12:42
 
Linda
æji takk fyrir Bryndís mín! :D
#4
21. september 2007 klukkan 10:47

Skrifa athugasemd

Auglýsing

hér er ég

  • Nafn: Linda Hrönn
  • Netfang: lindahronn@visir.is
  • Stađur: Reykjavík
  • Hjúskaparstađa: Í sambúđ

Sumarfrííí...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...