Aðalvalmynd

sumarið er að enda...

04. september 2007 klukkan 23:59
já! Sumarið er sko að verða búið, versló búin, gay pride búið.... rigningin og veikindin komin á stjá... og framundan er bara meiri rignin, snjór, slydda, drulla og myrkur!!
JEY!! =)

en já, og núna er hin alræmda afmælistíð byrjuð... Katrín á afmæli í dag, næst Bryndís, svo Arnar, svo Sunneva, svo Arna... úff! Af hverju þurfti ég að velja mér vini sem eiga afmæli í einni kös!!! ;D

ég fór í afmælispartý um helgina í sveitinni :)  Það var í hlöðu, og það var sko auðvitað geggjað stuð!
Svo þarnæstu helgi eru réttir, og ég ætla að fara og taka Katrínu með mér!! og Við hlökkum sko geggjað til ;D
Katrín er að fara í réttir í fyrsta skipti og ég annað þannig að við ættum að vera þokkalega skrautlegar í þessu hehe :D
Vona bara að við skemmum ekki margar rollur   hehehehehe!!

ég sit sko veik heima, er búin að vera veik síðan á sunnudag... hélt fyrst að þetta væri bara óvenjuleg þynnka en komst svo að því að sem betur fer verð ég ekki svona þunn :D
En er að deyja úr hausverk, kvefi og öllu sem því fylgir!!
Held að ég þurfi enn einu sinni að fara og fá pensilín hjá lækni á morgun, þetta helv.. kvef nær alltaf að troða sér útúm allan haus á mér þannig að það verður einhvern veginn að losa það... og þangað til það gerist verð ég ekki hæf í mikið, þar sem að mér líður eins og það gæti komið sprunga í hausinn á mér á hverri stundu og eitthvað farið að vella út... þvílíkur þrýstingur!!!
já ég veit að ég er geggjað smekkleg :D

en já, ætla að reyna að drífa mig að koma myndum inn á síðuna Gísla og koma mér svo í rúmið...



ohh... á ekki verkjatöflur...

Skrifa athugasemd

Auglýsing

hér er ég

  • Nafn: Linda Hrönn
  • Netfang: lindahronn@visir.is
  • Staður: Reykjavík
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð

Sumarfrííí...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...