Ađalvalmynd

Ferđalög

19. júlí 2007 klukkan 23:25
ég held barasta að ég hafi aldrei ferðast svona mikið á einu sumri!!

Seinustu helgi fórum við litla fjölskyldan á ættarmót, rétt hjá Egilsstöðum! Keyrðum á Akureyri á fimmtudeginum og svo þaðan á Skjöldólfsstaði á föstudeginum! Svo voru teknir tveir rúntar á Egilsstaði yfir helgina og svo brunað á Hólmavík á Sunnudeginum! Svo keyrði ég til Reykjavíkur á þriðjudaginn og er svo að fara aftur á Hólmavík á morgun, og þaðan á Reykhóla á annað ættarmót!!

Svo þurfum við náttúrulega að keyra aftur þaðan og í bæinn, og svo er jafnvel hugmynd að skreppa frá Reykhólum á Drangsnes eitthvað yfir helgina...

Svo þegar ég fer í sumarfrí (27. júlí) ætla ég líklegast að fara með Gísla Mar heim á Sigló!!

ég held barasta að ég hafi jafnað bílsetu mína yfir ævina á þessu eina sumri!!!
Fyrir utan ferðina til Spánar, dísess... hef aldrei farið svona marga kílómetra á svona stuttum tíma!!

já svo átti hann Gísli afmæli seinasta föstudag!! (föstudaginn 13.) :)
Dísess hvað þetta litla kríli er orðið stórt, það fer bara að koma að fermingu liggur við ;)

svo sit ég heima núna með einhvern flensuskít eða eitthvað, drepast úr hausverk, með hita og svona rosalega skemmtilegan hósta!! og vona bara að ég verði búin að hressast á morgun svo ég fari nú ekki að beila á fjölskyldunni minni... það yrði talað um það fram yfir næstu aldamót takk fyrir!!

en jæja... leiðist bara og hef eiginlega ekkert að segja!

Munið bara að færri hestöfl á veginum eru betri en fleiri út í skurði!!

Þar með líkur lestri kvöldsins, takk fyrir og góða nótt.
 
Katrín
svo miklill ferðalangur !
drífðu þig til mín!!
#1
20. júlí 2007 klukkan 21:31
 
Linda
kem líklegast á föstudaginn!
eða einhvern tímann um helgina allavega :)
#2
23. júlí 2007 klukkan 00:04
Gaman að sjá þig um helgina sæta=)
#3
09. ágúst 2007 klukkan 11:30
 
Katrín
koddu með eitthvað
#4
13. ágúst 2007 klukkan 03:51
Eva María Sveinsdóttirpartý 8 sept hjá mér =) hehe kommentađi líka hjá katrínu og langar ađ fá einhverjar stelpur heim og panta pizzur og hrinja í ţađ =) hehe =)
#5
30. ágúst 2007 klukkan 20:18

Skrifa athugasemd

Auglýsing

hér er ég

  • Nafn: Linda Hrönn
  • Netfang: lindahronn@visir.is
  • Stađur: Reykjavík
  • Hjúskaparstađa: Í sambúđ

Sumarfrííí...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...