Aðalvalmynd

Ekki nema vika!!

07. júní 2007 klukkan 17:44
Jahá góðir hálsar og hausar!!!

Ekki nema vika þangað til maður skellir sér til Benidorm!!
Ég á eftir að fá hjartaáfall úr spenningi ef ég held svona áfram hehe :)


Já, Katrín kemur suður á morgun og verður hérna þangað til við förum út... og Mamma kemur líka á morgun, en hún er að fara til Danmerkur í golfferð á laugardag. Hún ætlar að vera svo elskuleg að lána mér ferða DVD spilara þannig að ég get horft á hvað sem mig langar til að horfa á í flugvélinni... það ætti kannski að hrista af mér eitthvað af flughræðslunni!! Ætla að kaupa mér Friends seríu/r og horfa á það á leiðinni og vera búin að fá mér nokkra bjóra áður en lagt er af stað og þá ætti ég vonandi að vera nokkuð góð! :)

Eins og ég elska vinnuna mína útaf lífinu þá er ótrúlegt hvað maður getur orðið þreyttur á þessu... ég komst bara í gegnum daginn í dag með því að hugsa "bara 3 vinnudagar, og svo sumarfrí" hehe... og þá var mér alltaf það létt að ég var ekki að pirrast neitt of mikið :)

Ég er semsagt að vinna á morgun, mánudag og þriðjudag.. svo frí og svo út á fimmtudag! JEY!!


Heyriði... í gær áttum ég og Halldór eins árs trúlofunarafmæli :) Við fögnuðum því með því að skella okkur út að borða, voða rómó :) svo fórum við í smá göngutúr, keyptum okkur ís og fórum heim og kveiktum á kertum og horfðum á bíómynd saman... voða rólegt og geggjað næs kvöld ;)

En þá held ég að ég sé búin með fréttirnar sem ég hef... ætla að fara að horfa á 50 first dates... og hugsa svo um hvort ég nenni eitthvað að vera að taka til ;)

Linda letingi kveður!

Skrifa athugasemd

Auglýsing

hér er ég

  • Nafn: Linda Hrönn
  • Netfang: lindahronn@visir.is
  • Staður: Reykjavík
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð

Sumarfrííí...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...